Mjúkt flæði

Mjúkt flæði

kr.

Valmöguleikar

Æfingarkerfi hannað og er kennt undir leiðsögn sjúkraþjálfara.

Hefst:  3 október, 6 vikur

Vikudagar:

Val um að mæta 1x, 2x eða 3x í viku

mánudagar, miðvikudagar og föstudagar

Klukkan: 11:30 – 12:20

Kennarar: Linda Gunnarsdóttir lögg. sjúkraþjálfari. Linda er eigandi Endurheimtar og hefur áratuga reynslu af þjálfun.

Markmið:

Róa taugakerfið, bæta svefngæði og virkja sefkerfið.

Um námskeiðið:

Hópurinn hittist á mánudögum og miðvikudögum þar sem gerðar eru rólegar flæðis æfingar í bland við almennar styrkjandi æfingar. Hámark 10 þátttakendur í hverjum hóp tryggir að hver og einn fái þá persónulegu nálgun og þjónustu sem hann þarf. Passað er vel upp á viðeigandi álagsstig hjá hverjum og einum og hentar því námskeiðið bæði byrjendum jafns sem lengra komnum. Tíminn endar á leiddri slökun til að tryggja betri endurheimt.

Leiddur teygju og hugleiðslutími er á föstudögum kl 1o:30 – 11:20.

 

Í hnotskurn er…

  • rólegt gott flæði allan tímann sem byggir upp og gerir einstaklinginn öruggan í sínum æfingum.
  • lögð áhersla á góðar grunnæfingar til að byggja upp styrk og liðka líkamann. Tíminn er rólegur, upphitun byggist á að ná tökum á hreyfingum og því meira lagt upp úr árangursríkum æfingum, teygjum og slökun.
  • æft er í fámennum hóp (hámark 10)
  • álagi stýrt niður á einstaklinga í tímunum. Ef þú hefur meiri orku og styrk þá byggjum við ofan á grunnæfingarnar.

Aðgangur að infra rauðum klefa fylgir kaupum á námskeiði.

—–

6. vikur

1x í viku: 25.900kr

2x í viku 42.000kr

3x í viku: 72.000kr

 

Skrá mig í hóp

Vinsælast undanfarið