Heilsuvitund
Heilsuvitund

64.000 kr.
Heilsa til framtíðar – Æfingameðferð & markmiðasetning
Hefst: 12. september
Vikudagar: Þriðjudagar og fimmtudagar
Klukkan: 10:00 – 10:50
Kennarar: Helga Ágústsdóttir lögg. sjúkraþjálfari, markþjálfi og jóga kennari
Uppbygging:
8 vikna námskeið – viðtal fyrir og eftir námskeið í viku 1 og 8.
Vika 1 – Markmiðasetning – 30 mín
Vika 2-7 – Hóptímar 2x í viku, í 6 vikur – 12skipti 50 min í senn
Vika 7-8 Lokaviðtal 30 mín – Árangur þjálfunar og næstu skref.
Markmið:
Markmið hreyfingar er að auka vellíðan, líkamsvitund, liðleika og að losa um spennu.
Fræðsla og æfingar með eigin líkamsþyngd, hreyfiflæði, teygjur og slökun.
Unnið eftir æfingakerfum á við jóga & bandvefslosun með boltum & teygjum ásamt almennum grunnæfingum sjúkraþjálfunar. Notast er við aðferðafræði og nýjustu nálganir sjúkraþjálfunar þar sem unnið er m.a. með verki og skynúrvinnslu. Lögð er áhersla á að skynja og taka eftir líðan, með áherslu á jákvæða nálgun á sitt heilsufar. Skoða hvað viðkomandi getur gert þrátt fyrir tiltekin heilsufarsvanda. Stuðla þannig að auknu innsæi á líkamlega getu og gefa von um bætta líðan með því að tileinka sér ný viðhorf og æfingar í daglegu lífi. Stuðningur með æfingar og samskipti í gegnum Physiotrack æfingaapp.
Skrá mig í hóp