Hjúpurinn
Hjúpurinn
Hjúpurinn er afar hentugur fyrir þá sem eru að glíma við streitu í lífinu og vilja kúpla sig út í algjörri vellíðan og slökun.
Hjúpurinn er talinn hafa jákvæð áhrif á:
- Afeitrun líkamans (detox)
- Streitu
- Bólgur
- Gigt
- Húðina
- Efnaóþol
- Stoðkerfisverki
- Sogæðakerfið
Far, mid og NEAR infra rauðir geilsar umlykja þig og mýkja upp og opna á svitaholurnar þannig gott detox á sér stað. Hjúpurinn hentar þeim vel sem eru með efnaóþol og tækið er lágt í EMF.
Þú mætir með stórt handklæði með þér í tímann sem þú leggur á dýnuna, við kennum þér svo að stilla Hjúpinn eftir þínum þörfum. Við mælum með að stilla hitann í 64 gráður en hitinn getur farið upp í 74 gráður. Hver tími er 30 mín.
„Hjúpurinn er eins og að fara til Tenerife í 30 mín!“
Mundu eftir:
- stóru handklæði
- heyrnartólum
—
Hægt að bóka tíma í síma 565 5500 eða fylltu út formið hér að neðan og við höfum samband við þig.
Tíminn kostar 4.500kr.
Greitt er fyrir tímann á staðnum.