Infrarauður klefi

Infrarauður klefi

1.200 kr.

Dásamleg slökun

Infra-rauð meðferð hefur reynst mörgum góð verkjastilling. Árangursrík meðferð til að auka blóðflæði og við verkjastillingu.

Infrarauður hiti er talinn hafa jákvæð áhrif á:

  • Afeitrun líkamans (detox)
  • Streitu
  • Bólgur
  • Gigt
  • Húðina
  • Efnaóþol
  • Stoðkerfisverki
  • Sogæðakerfið
  • Aukið streituþol

Hvernig fer tíminn fram:

Þú færð aðgang að infra rauðum „einka“ klefa sem þú situr inn í og leyfir þreytunni að líða úr þér í 20-45 mín. Klefinn hitnar mjög vel (74°) og þú mátt búast við að byrja að svitna eftir um 10 mínutur.

Gott er að vera í sundfötum/nærfötum í klefanum og þú kemur sjálf(ur) með handklæði  til að leggja undir þig í klefanum og eins ef þú vilt skella þér í sturtu eftir tímann.

 

Öruggur fyrir umhverfisveika

Klefinn er undir EMF mörkum (rafsegulmengun) og viðurinn sem notaður er í klefann ertir ekki fólk með er með efnaóþol.

  • Vinsamlega mættu ilmefnalaus í klefann.
  • Vinsamlega mættu með handklæði með þér.

Bóka tíma

Hægt að panta tíma í síma 565 5500 eða hjá þínum sjúkraþjálfara (þú færð úthlutað klukkutíma) sem ætti að vera nægur tími til að hita klefann og njóta.

Fyrsti tíminn: Þú bókar þig í síma 565-5500, það er tekið á móti þér og við sýnum þér aðstöðuna og kennum þér á stillingar á klefanum.

Næstu tímar: Þú bókar tíma í síma 565-5500 en þar sem við erum ekki með starfsmann í afgreiðslunni þá trítlar þú bara beint inn í herbergið þar sem infra rauði klefinn er :)

 

10. tíma kort: 9.800kr

Stakur tími: 1.200kr

ath við lánum ekki handklæði – vinsamlega komdu með þitt eigið.

Vinsælt hjá Endurheimt