Infrarauður einkaklefi / infrarauð gufa

0 kr.
Slakaðu á og hreinsaðu líkamann í einkaklefa – infrarauð gufa
Infra-rauð meðferð hefur reynst mörgum góð verkjastilling. Árangursrík meðferð til að auka blóðflæði og opna á sogæðakerfið.
Infrarauður hiti hefur jákvæð áhrif á:
- Afeitrun líkamans (detox)
- Streitu
- Bólgur
- Gigt
- Húðina
- Efnaóþol
- Stoðkerfisverki
- Sogæðakerfið
—
Hvernig fer tíminn fram:
Þú færð aðgang að infra rauðum „einka“ klefa sem þú situr inní og leyfir þreytunni að líða úr þér í 20-45 mín. Klefinn hitnar mjög vel (74°) og þú mátt búast við að byrja að svitna eftir um 20 mínutur.
Gott er að vera í sundfötum í klefanum og þú kemur sjálf(ur) með handklæði ef þú vilt skella þér í sturtu.
Best er að leyfa líkamanum að halda áfram að hitna eftir meðferðina í um 45 mín til að hámarka virknina. Það er þó sturta til staðar fyrir þá sem vilja skella sér í kalda sturtu eftir hitann.
—
Öruggur fyrir umhverfisveika
Klefinn er undir EMF mörkum (rafsegulmengun) og viðurinn sem notaður er í klefann ertir ekki fólk með er með efnaóþol.
Hægt er að bóka tíma í klefann frá kl. 9:00-16:00 alla virka daga.
Í gegnum Noona getur þú séð hvort laust sé í tíma og bókað þegar þér hentar best. Einnig er hægt að panta tíma í síma 565 5500, í móttökunni hjá okkur í Endurheimt eða á endurheimt@endurheimt.is
Greitt er fyrir tímann á staðnum.
—
Klippikort – sumartilboð
Hægt er að kaupa 5 og 10 tíma klippikort hér í vefverslun eða á staðnum.
—
Finndu lausan tíma bókaðu þegar þér hentar best!
Hér getur þú séð hvort laust sé í tíma og bókað þegar þér hentar best. Einnig er hægt að panta tíma í síma 565 5500 eða í gegnum endurheimt@endurheimt.is
Greitt er fyrir tímann á staðnum.