Vacumed – hendur, axlir, höfuð

kr.

Sumartilboð á klippikortum *

– gildir í Hjúpinn, Vacumed og þrýstiskálmar

VACUMED® efri partur

Meðferðin fer þannig fram að þú situr í þæginlegum stól með annan handlegginn inn í hólki, við pössum vel upp á að þér líði sem best á meðan meðferðinni stendur. Þessi meðferð sem býðst í tækinu er algjörlega óviðjafnanleg og framúrskarandi á sviði endurhæfinga við krónískum verkjum, bólgum og bjúg.

Meðferðin byggist á jöfnu, taktföstu þrýstings- og lofttæmisnuddi æðakerfisins. Með lofttæmiþrýstingsnuddinu tekst á lífeðlisfræðilegan hátt að auka blóðstreymið staðbundið og sogæðakerfið nær betur að starfa og endurnýja sig.

Meðhöndlunarbreyturnar byggjast á mismunandi löngum hléum á milli undirþrýstings og þrýstings sem og mismunandi styrkleikaprógrömmum sem hægt er að velja í tækinu. Í gegnum þetta ferli er hægt að örva virkni slagæða, æða og sogæða á mismunandi hátt.

Meðferðin er eingöngu í boði hjá okkur í Endurheimt heilsumiðstöð og hefur reynst vel íþróttafólki, golfurum, við bólgum, gigt, þeim sem hafa fengið brjóstakrabbamein og þurft að láta fjarlæga eitla og brjóst. Meðferðin eykur sogæðaflæði og hjálpar þar til við að losa bjúg og bólgur.

Vacumed hefur jákvæð áhrif á:

  • Bólgur
  • Carpal tunnel
  • Tennis/ golf olnboga
  • Bjúg í handlegg
  • Skert blóðflæði
  • Raynaud – hvítir fingur

Ef komið er inn í gegnum sjúkraþjálfara hjá Endurheimt er sett upp meðferðaráætlun og hægt er að nota beiðni og greiða 2500 kr. komugjald.

Meðferðin tekur 15 mín á hvorri hendi

Mælt er með 7-10 skiptum á þriggja vikna tímabili til þess að hámarka árangur.

Klippikort – sumartilboð

Hægt er að kaupa 5 og 10 tíma klippikort hér í vefverslun eða á staðnum.

Finndu lausan tíma bókaðu þegar þér hentar best!

Hér getur þú séð hvort laust sé í tíma og bókað þegar þér hentar best. Einnig er hægt að panta tíma í síma 565 5500 eða í gegnum endurheimt@endurheimt.is

Greitt er fyrir tímann á staðnum.

Vinsælast undanfarið