Vacumed – hendur, axlir, höfuð
Vacumed – hendur, axlir, höfuð
VACUMED® efri partur
Meðferðin fer þannig fram að þú situr í þæginlegum stól með annan handlegginn inn í hólki, við pössum vel upp á að þér líði sem best á meðan meðferðinni stendur. Þessi meðferð sem býðst í tækinu hefur jákvæð áhrif á endurhæfinga við krónískum verkjum, bólgum og bjúg.
Tíminn byggist á jöfnu, taktföstu þrýstings- og lofttæmisnuddi æðakerfisins. Með lofttæmiþrýstingsnuddinu tekst að auka blóðstreymið staðbundið og sogæðakerfið nær betur að starfa og endurnýja sig.
Meðhöndlunarbreyturnar byggjast á mismunandi löngum hléum á milli undirþrýstings og þrýstings sem og mismunandi styrkleikaprógrömmum sem hægt er að velja í tækinu. Í gegnum þetta ferli er hægt að örva virkni slagæða, æða og sogæða á mismunandi hátt.
Meðferðin er eingöngu í boði hjá okkur í Endurheimt heilsumiðstöð og hefur reynst vel íþróttafólki, golfurum, við bólgum, gigt, þeim sem hafa fengið brjóstakrabbamein og þurft að láta fjarlæga eitla og brjóst. Meðferðin eykur sogæðaflæði og hjálpar til við að losa bjúg og bólgur.
Vacumed er talið hafa jákvæð áhrif á:
- Bólgur
- Carpal tunnel
- Tennis/ golf olnboga
- Bjúg í handlegg
- Skert blóðflæði
- Raynaud – hvítir fingur
Meðferðin tekur 15 mín á hvorri hendi
Mælt er með 7-10 skiptum yfir þriggja vikna tímabili til þess að hámarka árangur.
—
Í fyrsta tíma hittir þú sjúkraþjálfara sem setur upp meðferðaráætlun fyrir þig.
—
Finndu lausan tíma bókaðu þegar þér hentar best!
Hægt að panta tíma í síma 565 5500 eða fylltu út formið hér að neðan og við höfum samband við þig og finnum tíma sem hentar.
Greitt er fyrir tímann á staðnum.
Skráðu þig