Vacumed
Vacumed
4.500 kr.
Um Lindu
Hæ ég heiti Linda!
Síðan ég man eftir mér þá hef ég haft áhuga á heilsu, matarræði og andlegri heilsu, Það var þó ekki fyrr en ég missti sjálf heilsuna að ég áttaði mig almennilega á því hvað það skiptir ótrúlega miklu máli að vinna með alla þessa þætti saman til þess að eiga möguleika á að ná heilsunni aftur til baka. Mín veikindi hafa gert mig að manneskjunni og meðferðaraðilanum sem ég er í dag.
Ég stofnaði Endurheimt og þróaði námskeiðið Endurheimtu orkuna með þá von að getað hvatt aðra og leiðbeint í átt að bættri heilsu.
Ég útskrifaðist sem sjúkraþjálfari árið 2008 og á undanförnum árum hef ég sótt fjöldann allan af námskeiðum og ráðstefnum um allan heim. Nú stunda ég diploma nám í Functional Medicine e við Functional Medicine University í Bandaríkjunum. Í því námi er einmitt lögð áhersla á að hjálpa fólki að finna rót vandans og vinna að heildrænni meðferð í átt að bættri heilsu.
Sagan mín
Ég er tveggja barna móðir og bý í Hafnarfirði með manninum mínum. Ég hef alla tíð haft brennandi áhuga á öllu sem viðkemur heilsu og matarræði. Ég æfði mikið sem barn, allskonar íþróttir og var alltaf ágæt í öllu en entist aldrei í neinu einu – sem í rauninni skiptir ekki máli því fyrir mig er hreyfing lífið en áherslan var aldrei að verða afrekskona í einhverri einni íþrótt.
Ég hef alltaf haft þörf á að vinna með fólki, mér finnst gaman að tala við fólk og hlusta og fólk hefur alltaf leitað til mín með sín vandamál. 2002 lærði ég einkaþjáfarann og fannst frábært að getað hjálpað fólki að ná sínum markmiðum en ég fann það fljótt að mig þyrsti í meiri þekkingu um mannslíkamann og skráði mig í nám í sjúkraþjálfun. Þegar ég hafði starfað sem sjúkraþjálfari í nokkra mánuði fann ég að þetta var ekki alveg það sem ég hafði haft í huga – mér fannst vanta heildrænni nálgun í meðferðina. Stuttu eftir útskrift var ég strax farin að vinna hálfgerða “færibanda” vinnu og mér líkaði það ekki.
Ég var svoldið leitandi, lærði heilun, dáleiðslu og Höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð. Ég fann það strax að þar var ég komin inn á línu sem ég gat sætt mig við að vinna með – heildræn nálgun þar sem horft er á líkama og sál sem eina heild.
Ég vann í mörg ár samhvæmt þessari nágun og líkaði vel en þegar ég sjálf missti heilsuna 2014 þá fór ég að lesa mér enþá meira til um hvað matarræðið og afeitrun líkamans hefur gríðarlega mikið að segja til þess að ná heilsunni aftur í gott horf. Ég fór að horfa meira til þátta í umhverfinu sem hafa áhrif á heilsuna, hvað ber að varast og hvað við getum sjálf gert til að hafa jákvæð áhrif á heilsuna okkar. Ég hef loksins fundið nám sem tekur á öllum þessum þáttum og kallast það Functional Medicine.
Functional Medicine meðferðaraðili hjálpar fólki að finna mögulega rót vandans en ekki plástra á einkennin. Ef við finnum út hvað er að valda breytingum á t.d hormónakerfinu, hvað er að valda exeminu eða heilaþokunni þá fyrst er hægt að laga orsökina og losna við einkennin.
Ég hef ótrúlega gaman að því að læra meira og meira um okkar frábæra líkama og hvernig öll kerfin okkar vinna saman. Ef eitt kerfi vinnur ekki rétt þá hefur það áhrif á allan líkamann. Við getum hugsað þetta eins og mörg tannhjól sem vinna saman – ef eitt bilar þá hætta hin tannhjólin að virka líka.
Ég er ótrúlega spennt og þakklát fyrir vinnuna mína og get í einlagni sagt að ég er heppin að vinna við mitt helsta áhugamál.
VACUMED® sogæðameðferð sem örvar blóðflæði og opnar á sogæðakerfið, hentar því bæði vel fyrir vel fyrir íþróttafólk sem er að jafna sig eftir erfiðar æfingar og fólk sem er með vefjagigt, ME, umhverfisveikindi, sykursýki, fótaóeirð, fitubjúg, bjúg o.fl. Meðferðin hentar einnig til þess að draga úr bólgum eftir aðgerð á ökla, hné eða mjöðm.
Vacumed er góð endurheimt eftir æfingu.
Vacumed® er talið hafa jákvæð áhrif á:
- Fótaóeyrð
- Bólgur
- Gigt
- Húðina
- Efnaóþol og afeitrun
- Stoðkerfisverki
- Sogæðakerfið
- Fitubjúgur (lipoedema)
- Endurheimt
Það fer fram taktfast þrýstings- og lofttæmisnudd á æðakerfinu sem stóreykur blóðflæði í æðum og vöðvum þannig að svæði, sem hafa orðið fyrir meiðslum, jafna sig mun fyrr.
“Mig verkjar ekki svona í fæturna lengur og get loksins labbað. Ég hef verið að kljást við mikla fótaóeirð frá því að ég var ung og mikla verki frá tám upp í nára fá 2019 sem gerðu það að verkum að ég var alveg hætt að geta gengið neitt að ráði. Ég prófaði Vacumed eftir ábendingu frá frænku minni og ég fann svo mikinn mun á mér strax eftir 5 tíma. Við fórum til Tenerife fyrir ári síðan og ég gat ekki gengið neitt. Við vorum að koma frá Kanarí núna og ég gat gengið 16.000 skref. Maðurinn minn var orðlaus. Eins kom síðasta blásturspróf fyrir lungun miklu betur út núna, segir Sigríður Gissurardóttir“, 68 ára.
Hvernig fer meðferð fram:
Þú byrjar á því að hitta sjúkraþjálfara sem setur upp áætlun fyrir þig. Sjúkraþjálfarar á stofunni nýta tækið sér til stuðnings í meðferð ef við á.
Meðferðin tekur 30 mín.
Mælt er með 7-10 skiptum á þriggja – fjögurra vikna tímabili til þess að hámarka árangur.
Þú liggur á bakinu á meðan meðferðinni stendur, við pössum vel upp á að þér líði sem allra best, við bjóðum uppá infra rauðan hita á mjóbak eða háls á meðan meðferð stendur. Þú getur fengið lánað hjá okkur heyrnartól sem þú getur parað við símann þinn ef þú vilt nota tímann og hlusta eða horfa á eitthvað á meðan þú ert hjá okkur.
—
Bóka tíma í sogæðameðferð.
Hægt að panta tíma í síma 565 5500 eða fylla út formið hér að neðan og við höfum samband við þig.
Sjúkraþjálfarar okkar hjálpa þér að setja upp meðferðaráætlun.
Bóka tíma