Vacumed – hendur, axlir, höfuð
Vacumed – hendur, axlir, höfuð

VACUMED® efri partur
Meðferðin fer þannig fram að þú situr í þæginlegum stól með annan handlegginn inn í hólki, við pössum vel upp á að þér líði sem best á meðan meðferðinni stendur. Þessi meðferð sem býðst í tækinu hefur jákvæð áhrif á endurhæfinga við krónískum verkjum, bólgum og bjúg.
Tíminn byggist á jöfnu, taktföstu þrýstings- og lofttæmisnuddi æðakerfisins. Með lofttæmiþrýstingsnuddinu tekst að auka blóðstreymið staðbundið og sogæðakerfið nær betur að starfa og endurnýja sig.
Meðhöndlunarbreyturnar byggjast á mismunandi löngum hléum á milli undirþrýstings og þrýstings sem og mismunandi styrkleikaprógrömmum sem hægt er að velja í tækinu. Í gegnum þetta ferli er hægt að örva virkni slagæða, æða og sogæða á mismunandi hátt.
Meðferðin er eingöngu í boði hjá okkur í Endurheimt heilsumiðstöð og hefur reynst vel íþróttafólki, golfurum, við bólgum, gigt, þeim sem hafa fengið brjóstakrabbamein og glýma við sogæðabjúg. Meðferðin eykur sogæðaflæði og hjálpar til við að losa bjúg og bólgur.
Vacumed er talið hafa jákvæð áhrif á:
- Bólgur
- Carpal tunnel
- Tennis/ golf olnboga
- Bjúg í handlegg
- Skert blóðflæði
- Raynaud – hvítir fingur
Hvernig fer meðferð fram:
Þú byrjar á því að hitta sjúkraþjálfara sem setur upp áætlun fyrir þig. Sjúkraþjálfarar á stofunni nýta tækið sér til stuðnings í meðferð ef við á.
Mælt er með 7-10 skiptum yfir þriggja 3-4 vikna tímabili til þess að hámarka árangur.
Partur af meðferð sjúkraþjálfara
Ef sjúkraþjálfari á stofunni mælir með Vacumed sem stuðning við meðferð þá er tíminn niðurgreiddur af Sjúkratryggingum Íslands. Óskir þú eftir að komast að í meðferð þá er best að hafa samband við afgreiðsluna okkar í síma 565-5500 og bóka tíma hjá sjúkraþjálfara.