Sigrún Baldursdóttir
Sjúkraþjálfari BSc, MT´c og lýðheilsufræðingur MPH
Ég er sjúkraþjálfari og lýðheilsufræðingur, já og svo tók ég sérfræðigráðu í manual therapy líka. Ég hef helgað mig gigtarfólki og mitt sérsvið er einkum fólk með vefjagigt enda rak ég Þraut – miðstöð vefjagigtar og tengdra sjúkdóma á annan áratug og hef haldið úti vefsíðunni www.vefjagigt.is í rúm 16 ár.
Ég þjónusta fólk með langvinna verki, vefjagigt og síþreytu. Ég legg áherslu á að meta og mæla heilsufarsástand, fræða og setja upp endurhæfingaráætlanir byggðar á gagnreyndum vísindalegum niðurstöðum. Ég mun einnig bjóða upp á fjölbreytt námskeið (Sjálfshjálparskólinn) og hópþjálfun. Sjá á forsíðu Endurheimtar.
Sérsvið
Vefjagigt og tengdir sjúkdómar
Börn og ungmenni með langvinna verki
Hópþjálfun – Vefjagigtarleikfimi
Sjálfshjálparskólinn fræðslusetur
Menntun og námskeið
Starfsferill
1999- 2023
Sjúkraþjálfun Styrkur ehf.
Sjúkraþjálfari, stofnandi og eigandi fyrirtækisins ásamt 6 öðrum sjúkraþjálfurum
2007- 2023
Þraut ehf – miðstöð vefjagigtar og tengdra sjúkdóma
Framkvæmdastjóri og einn af stofnendum Þrautar
2007-
Stofnandi og eigandi www.vefjagigt.is
1994-
Háskóli Íslands
Stundakennari í Læknadeild við Námsbraut í sjúkraþjálfun
1991-1998
Gigtarfélag Íslands
• Hópþjálfun fyrir fólk með gigt
• Fræðslunámskeið fyrir fólk með vefjagigt og aðstandendur þeirra
• Leiðbeinandi á sjálfshjálparnámskeiðum fyrir fólk með gigt
1990-1999
Máttur sjúkraþjálfun ehf.
Sjúkraþjálfari
Hópþjálfun
1988-1989
Landspítali – Gigtardeild
Sjúkraþjálfari
Hefur haldið fjölda fyrirlestra og fræðslunámskeið um vefjagigt fyrir heilbrigðisstéttir og skrifað
greina í blöð og fræðslurit.
Menntun
2007
Háskólinn í Reykjavík – Meistarapróf í lýðheilsufræðum, MPH
Lokaverkefni: www.vefjagigt.is
2000
University of St. Augustine, Florida. Manual Therapy certfication, MT´c.
Framhaldsnám í greiningu og meðferð á hrygg og útlimaliðum
1988
Háskóli Íslands – Læknadeild – BSc próf í sjúkraþjálfun
1983-1984
Háskóli Íslands. Hjúkrunarfræði, 30 einingar
Hefur farið á fjölda námskeiða og reglulega farið á gigtar- og verkjaráðstefnur.