Kjartan Hrafn Loftsson

Læknir

info(hja)soundhealth.is

Almennur læknir með mikla reynslu úr heilsugæslu og lífsstílsnálgun til að hægja á eða stöðva framþróun langvinnra kvilla.

Kjart­an út­skrifaðist úr lækna­deild HÍ árið 2007 og hef­ur unnið í heilsu­gæslu­ í tæpan áratug, bæði í Svíþjóð og á Íslandi. Einnig hefur hann verið trúnaðarlækn­ir fyr­ir fyr­ir­tæki og stofn­an­ir, lækn­ir á hjúkr­un­ar­heim­il­um og unnið við rann­sókn­ir hjá Íslenskri erfðagrein­ingu. Haustið 2020 hóf hann störf sem lækn­ir hjá stafræna heilbrigðisfyrirtækinu Si­dekickHealth og vann þar við uppsetningu á rannsóknum og klínískri þóun stafrænna meðferðarúrræða vegna langvinna sjúkdóma. 

Frá 2014 hefur Kjartan verið sér­stak­lega áhuga­sam­ur um áhrif lífs­stíls á heilsu og sjúkdóma, en jafnframt að komast að rót vandans þegar það er mögulegt og beita lífsstílsúrræðum sem oftar en ekki hafa áhrif á mörg einkenni. Öll erum við mismunandi og því er oft nauðsynlegt að sérsníða meðferð að hverjum og einum. Fyrir marga snýst lífsstíll um bætta heilsu á efri árum og þar með forvörnum eða vinna að því að seinka aldurstengdum sjúkdómum en fyrir aðra getur lífsstílsmeðferðin snúið við þróun þeirra, minnkað þörf fyrir lyf og bætt lífsgæði.