Lífsstílslækningar
Sound Health lífsstílslækningar – læknisfræði framtíðarinnar?
Tekla og Kjartan eru læknar með mikla reynslu úr hefðbundnu heilbrigðiskerfi og þekkja kosti og galla þess. Reynsla þeirra er úr ýmsum áttum t.d. heilsugæslu, endurhæfingu, stafrænni heilbrigðisþjónustu, trúnaðarlækningum, öldrun ofl. Síðustu 10 ár hafa þau farið í saumana á lífsstílstengdum sjúkdómum og jafnframt skoðað ítarlega hvernig hægt er að finna merki og einkenni þess að heilsan sé að stefna í óefni.
Þau viljum kveikja áhuga og vinna með einstaklingum á nýjan hátt til að greina snemma undirliggjandi ástand og bregðast við – með mismunandi lífsstílsbreytingum. Þau starfa með Endurheimt enda mikill samhljómur og sameiginleg sýn á verkefnið, en fyrirtækið þeirra heitir Sound Health og er heilsufyrirtæki fyrir alla sem vilja huga að heilsu og vellíðan. Við vitum hversu áhrifaríkar lífsstílsbreytingar geta verið til að fyrirbyggja eða bæta ástand langvinnra sjúkdóma. Hér ríkir traust og hlustað er á skjólstæðinga.
Sérstök áhersla er á hugmyndafræði lífsstílslækninga (e. lifestyle medicine) sem byggir á vísindalegum grunni og gagnreyndum aðferðum til að fyrirbyggja, bæta meðferð og jafnvel snúa við lífsstílstengdum sjúkdómum.
Fyrir hverja er Sound Health:
- Einstaklinga sem eru áhugasamir um að vita hvernig staðan er mtt efnaskiptaheilsu (blóðsykur, insúlín, kólesteról, þvagsýra og margt fleira).
- Fyrir þá sem vilja bæta heilsuna með lífsstíl og lifa lengur við góða heilsu.
- Fyrir einstaklinga með sjúkdóma eða ástand sem tengjast lífsstíl eða samfélaginu t.d.
- Háþrýsting
- Sykursýki 2
- Yfirþyngd og offitu
- Þreyta og orkuleysi
- Andlegri heilsu ábótavant
- Hjarta/æðasjúkdómar
- Kæfisvefn
- PCOS (fjölblöðrueggjastokka heilkenni)
- Fitulifur
- Ofl.
Þjónusta í boði – ATH best er að bóka þjónustu í gegnum heimasíðuna www.soundhealth.is
- Stöðumat efnaskiptaheilsu
- Stutt yfirferð heilsu í formi spurningalista, mælinga og rannsókna. Túlkun og endurgjöf í síma/viðtali, ásamt skilablaði yfir helstu atriði og efnaskiptaheilsu.
- Kostnaður við rannsóknir innifalinn.
- Verð frá 21.900 kr.
-
- Fyrirlestrar og námskeið
- Í hvað fer þín orka? (Heildræn heilsa 101)
- Ítarlega farið í grunnatriði heilsu, á mannamáli og fyrir alla hvort sem er fyrir heilsuhrausta (fyrirbyggjandi) eða þá sem glíma við heilsufarsvanda.
- Kenndar verða undirstöður insúlin viðnáms og efnaskiptaröskun, sameiginlegur áhættuþáttur flestra langvinnra sjúkdóma, hvernig nútímalífsstíll er afgerandi þáttur og hvað á að gera í því.
- Uppsetning: 12 klst. fræðsla í eigin persónu. 3 klst í senn, vikulega í 4 vikur.
- Eftirfylgd: 1 klst spurt og svarað í gegnum fjarbúnað 2 vikum eftir lok námskeiðs.
- Verð 74.900 kr.
- Önnur námskeið verða auglýst sérstaklega
- Í hvað fer þín orka? (Heildræn heilsa 101)
- Einstaklingsráðgjöf
- Fyrirlestrar og námskeið
- Stakur tími
-
-
-
- 37.500 kr (1 klst viðtal auk forvinnu áður og eftir)
-
-
- 3ja mánaða samvinna að bættri heilsu.
-
-
-
- Innifalið eru 5 viðtalstímar á tímabilinu.
- Ítarleg yfirferð, kortlagning heilsufæra (tækifæri til að bæta heilsu). Á fyrstu 2 vikunum eru 2 viðtöl sem eru samtals yfir 2 klst. Vikuleg samskipti og eftirfylgd. Heimavinna, mælingar og rannsóknir eftir þörfum. Nb rannsóknir eru ekki innifaldar í verði.
- Verð 54.900 kr á mánuði í 3 mánuði.
-
-
- 6 mánaða samvinna að bættri heilsu.
-
-
- Innifalið eru 8 viðtalstímar í tímabilinu.
- Ítarleg yfirferð, kortlagning heilsufæra (tækifæri til að bæta heilsu). Á fyrstu 2 vikunum eru 2 viðtöl sem eru samtals yfir 2 klst. Vikuleg samskipti og eftirfylgd. Heimavinna, mælingar og rannsóknir eftir þörfum. Nb rannsóknir eru ekki innifaldar í verði.
- Verð 39.900 kr á mánuði í 6 mánuði.
-