Þjónusta

Sjúkraþjálfun

Sjúkraþjálfarar stuðla að auknum lífsgæðum fólks með því að huga að líkamlegri, huglægri, tilfinningalegri og félagslegri vellíðan. Þeir starfa innan heilbrigðisgeirans við heilsueflingu, forvarnir, meðferð, þjálfun og endurhæfingu.

Lífsstílslækningar

Tekla og Kjartan læknar leggjum sérstaka áherlsu á hugmyndafræði lífsstílslækninga (lifestyle medicine) sem byggir á vísindalegum grunni og gagnreyndum aðferðum til að fyrirbyggja, bæta meðferð og jafnvel snúa við lífsstílstengdum sjúkdómum.

Fyrirtækjaþjónusta

Aukin afköst fyrir þitt starfsfólk

Greining á líkamssamsetningu

Heilbrigt jafnvægi á milli vöðva og fitu er grundvöllur fyrir góðri heilsu og líðan á lífsleiðinni. Rannsóknir hafa sýnt að heilbrigð líkamssamsetning bætir árum við lífið og lífi við árin; minnkar t.d. líkur á hjarta- og æðasjúkdómum, sykursýki og sumum tegundum krabbameins, stuðlar að lægra insúlín viðnámi, eykur orku og bætir sjálfsmynd.

VACUMED®

Hraðari endurheimt eftir æfingu, hjálpar við fitubjúg og minnkar bólgur.

VACUMED® fyrir hendur axlir og háls

Árangursrík meðferð til að auka blóðflæði og opna á sogæðakerfið. Dregur úr bjúgsöfnun. Sérstaklega árangursríkt eftir brjóstnám.

Hjúpurinn

Hjúpurinn veitir alhliða vellíðan og endurheimt. Infra rauður hiti, endurnærandi nudd og ljósatherapía er fullkomin samblanda meðan þú slappar af í notarlegu umhverfi.

Infra-rauð meðferð

Árangursrík leið til að auka blóðflæði og opna á sogæðakerfið.  Infra-rauð meðferð hefur reynst mörgum góð verkjastilling.

Þrýstiskálmar og infra rautt hitateppi
Þrýstiskálmar

Þrýstinudd í infra rauðu teppi. Góð afslöppun og endurheimt fyrir þreytta fætur.

Móttaka fyrir verkja- og vefjagigtarfólk

Sigrún Baldursdóttir sjúkraþjálfari heldur utan um verkjamótttöku.

Móttaka fyrir börn og ungmenni

Sigrún Baldursdóttir heldur utanum móttöku barna og unglinga.

Móttaka fyrir Umhverfisveika

Linda Gunnarsdóttir sjúkraþjálfari heldur utanum móttöku þeirra sem veikst eftir viðveru í efna og örveru súpu (t.d myglu).