ENDURHEIMTU ORKUNA®
Námskeiðið hentar þeim sem eru að glíma við kulnun eða eru undir mikið álagi, eru með meltingarvandamál, svefnleysi, vefjagigt eða orkuleysi.
Þú getur byrjað strax í þinni endurhæfingu/ heilsueflingu hjá okkur, þú skráir þig og byrjar strax að auka orkuna þína með öruggri og þæginlegri nálgun.
Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval hóptíma og þú getur valið hvaða tímar hentar þér og þínum markmiðum best.
Nánar um hóptímana
Mjúkt flæði | Mjúkar flæðisæfingar, æfinga með eigin líkamsþyngd, teygjur og leidd slökun í lok tímans. |
---|---|
Tabata | 3x 20 sek æfingar, með eða án lóða. Hressandi og fjörugur tími sem endar á leiddri slökun. |
Bandvefslosun | Notaðir eru nuddboltar til að mýkja auma og þreytta vöðva, dempuð ljós í rólegu umhverfi. Tími endar á leiddri slökun. |
Stöðvaþjálfun | 8-10 æfinga stöðvar, 50 sek á hverri stöð. Hressandi og fjörugur tími sem endar á leiddri slökun. |
Mjúkt flæði/bandvefslosun | Bland af mjúkum flæðisæfingum, nuddboltum og tímann endar á leiddri slökun. |
Þú finnur hóptíma sem hentar þér og mátt rótera á milli hópa, mælt er með að mæta í 2-3 tíma í viku. Hér má sjá stundatöflu.
FYRIRKOMULAG
Þú skráir þig í hóp (hér fyrir neðan ) og Linda hringir í þig og þið setjið upp áætlun saman hvaða tímar gætu hentar þér útfrá markmiðum. Þú getur svo alltaf valið að mæta á öðrum dögum og í aðra hóptíma ef þannig ber undir, allt eftir því hvernig dagsformið er.
STUÐNINGUR
Samhliða því að mæta í hóptímana þá færð þú aðgang að ENDURHEIMTU ORKUNA® appi /netnámskeiði þar sem farið er yfir leiðir til að bæta lífstíl og venjur á árangursríkan, öruggan og einfaldan hátt. Þú ert í öruggum höndum og við leiðbeinum þér skref fyrir skref í átt að aukinni orku aftur!

ENDURHEIMTU ORKUNA ® hentar þér ef..
- Þú vilt læra markvissa og einfaldar leiðir til að tileinka þér heilbrigðari lífsvenjur sem virka.
- Þú ert í veikindaleyfi og ert að bíða eftir að komast að hjá VIRK.
- Þú ert í veikindaleyfi eða á endurhæfingarlífeyri og vilt faglega leiðsögn í átt að bættri heilsu.
- Þú að hefja þitt heilsuferðalag og vilt æfa í rólegu og notarlegu umhverfi.
- Þú vilt taka til í mataræðinu og vilt skýrar leiðbeiningar, uppskriftir og leiðsögn.
- Þú upplifir streitu í lífinu og vilt finna sjálfa þig aftur og byggja þig upp.
- Þú vilt faglega og örugga leiðsögn sjúkraþjálfara
Greiðslufyrirkomulag:
Þátttöku/staðfestingargjald er 9.900 kr á mánuði.
Með því að greiða þátttöku/staðfestingargjald tryggir þú þér:
- Pláss mánaðarlega
- Ótakmarkaðan aðgang að infra rauðum klefa og „æfingu dagsins“ á meðan endurhæfingu stendur.
Fyrir hvern hóptíma sem þú mætir í er notuð beiðni í sjúkraþjálfun (hóptímagjaldliður), vinsamlega kynntu þér greiðsluþáttöku Sjúkratrygginga Íslands hér. Sendur er greiðsluseðill í heimabanka í lok hvers mánaðar (ef eitthvað er útistandandi).
Athugið að þú gætir átt rétt á niðurgreiðslu frá þínu stéttarfélagi.
Taktu skrefið strax í dag!