Hallvarður Óskar Sigurðarson

Sjúkraþjálfari

Í janúar 2026 útskrifaðist ég sem sjúkraþjálfari frá UCL Erhvervsakademi og Professionshøjskole í Óðinsvé, Danmörku. Eftir útskrift starfaði ég sem sjúkraþjálfari á Grensás og Landspítalanum við Hringbraut.

Ég hef sérstakan áhuga á stoðkerfisvandamálum, íþróttameiðslum og endurhæfingu.

Í minni vinnu legg ég áherslu á að skapa þægilegt og traust umhverfi. Mér finnst mikilvægt að hlusta á mína skjólstæðinga og vinna með þeim í átt að raunhæfum markmiðum. Hvort sem það er að minnka verki, komast aftur í hreyfingu eða bæta lífsgæði.

Í frítíma mínum finnst mér gaman að allri hreyfingu meðal annars að hjóla, hlaupa og stunda styrktarþjálfun. Ég hef því bæði faglegan og persónulegan áhuga á hreyfingu og almennri vellíðan.

Ég hlakka til að kynnast þér og aðstoða þig á þinni vegferð að betri heilsu.