UMHVERFISVEIKINDI  – MYGLA

Ráðgjöf og stuðningur fyrir fólk sem hefur misst heilsu vegna viðveru í rakaskemmdu húsnæði (mygla).

Fagaðili: Linda Gunnarsdóttir sjúkraþjálfari

Markmið með nálgun minni sem sjúkraþjálfari er að hjálpa þér að skilja umhverfisveikindi, róa taugakerfið og kenna þér leiðir til að auka orku og þrek.

Megin markmið er að hjálpa þér að finna öryggi til að takast á við daglegt líf og gefa þér verkfæri til að grípa í eftir þörfum.

Linda býður nú upp á netnámskeið (app) með skref fyrir skref leiðbeiningum hvernig ráðlagt er að endurheimta heilsuna eftir umhverfisveikindi á heildrænan máta. Nú þegar hafa mörg hundruð manns farið í gegnum námskeiðið með góðum árangri.

Hægt er að fá aðgang að námskeiðinu „hér“ og opnast strax fyrir námskeiðið eftir að greiðsla berst.

Ef þú hefur áhuga á að bóka einstaklings viðtal við Lindu þá er best að hringja í afgreiðsluna í síma 565-5500 eða senda inn beiðni hér á síðunni.

Upphafstími: Viðtal/spurningalistar (50 min)

  • Farið er ítarleg yfir þína heilsufarsögu
  • Ráðgjöf – fræðsla – markmiðasetning

Framhaldstímar (30-45 mín) 

  • Einstaklingsmiðuð áætlun er sett upp – getur t.d verið sjúkraþjálfun, hópfræðsla, æfingar, sogæðameðferð, infra rauður hiti.
  • Fræðsla, ráðgjöf og markmiðasetning 

Óska eftir tíma