
Kjartan Hrafn Loftsson
Læknir
Ég útskrifaðist úr læknadeild HÍ árið 2007 og hef unnið sem heilsugæslulæknir í tæpan áratug, bæði í Svíþjóð og á Íslandi. Einnig hefur ég verið trúnaðarlæknir fyrir fyrirtæki og stofnanir, læknir á hjúkrunarheimilum og rannsóknarlæknir hjá Íslenskri erfðagreiningu. Haustið 2020 hóf ég störf sem læknir hjá stafræna heilbrigðisfyrirtækinu SidekickHealth og vann þar við uppsetningu á rannsóknum og klínískri þóun stafrænna meðferðarúrræða fyrir langvinna sjúkdóma.
Frá 2014 hefur ég verið sérstaklega áhugasamur um áhrif lífsstíls á heilsu og sjúkdóma, en jafnframt að komast að rót vandans þegar það er mögulegt og beita lífsstílsúrræðum sem oftar en ekki hafa áhrif á mörg einkenni. Öll erum við mismunandi og því er oft nauðsynlegt að sérsníða meðferð að hverjum og einum. Fyrir marga snýst lífsstíll um bætta heilsu á efri árum og þar með forvörnum eða vinna að því að seinka aldurstengdum sjúkdómum en fyrir aðra getur lífsstílsmeðferðin snúið við þróun þeirra, minnkað þörf fyrir lyf og bætt lífsgæði (aukin orka og betri líðan).
Kjartan hefur störf hjá Endurheimt á næstunni
Hægt er að komast á biðlista eftir tíma með því að senda á netfangið: laeknar@endurheimt.is
Verðskrá
Kynningartími/Intro – 15 mín – verð 8.900 kr.
- Samtal um markmið og væntingar.
- Ráðgjöf um næstu skref og gróf áætlun.
Fyrirbyggjandi heilsa & Efnaskipti og heilsa – 30 mín – verð 18.500 kr.
- Efnaskipti í fókus. Blóðsykur, insúlín, heilaheilsa, fituforði og vöðvamassi eru efnistök í forgrunni.
- Hentar fyrir afmörkuð vandamál eins og almenn fyrirbyggjandi uppvinnsla, hár blóðþrýstingur, sykursýki tegund 2, efnaskiptavilla, blóðfituröskun, forstig sykursýki, hjarta/æðasjúkdóma og bæta andlega heilsu.+
- Stöðumat á efnaskiptaheilsu og ákvörðun um rannsóknir.
- Grunnatriði lífsstílslækninga kennd og drög að meðferðaráætlun.
- Endurkoma áætluð innan 2ja vikna fyrir niðurstöður rannsókna og ítarlegri meðferðaráætlun.
Alhliða stöðumat – 50 mín – verð 36.500 kr.
- Hentar fyrir flóknari heilsufarsvandamál þar sem leitað er að rót vandans.
- Ítarleg greining á heilsu – virkni og andlegri líðan.
- Áætlun fyrir rannsóknir og spurningalista.
- Grunnatriði meðferðar kynnt.
- Endurkoma áætluð innan 2-3 vikna.
Einstaklingsmiðuð meðferðaráætlun – 30 mín – verð 18.500 kr.
- Framhaldstími eftir rannsóknir.
- Farið yfir niðurstöður úr blóðprufum og öðrum rannsóknum eftir sem við á.
- Meðferðaráætlun útbúin.
- Samantekt og eftirfylgd ákveðin.
Eftirfylgd og endurmat – 20 mín – verð 12.500 kr.
- Endurmat á árangri og markmiðum.
- Eftirfylgd á lífmerkjum (biomarkers), rannsóknum og spurningalistum.
Stuttur tími/ráðgjöf – 20 mín – verð 12.500 kr.
- Sérstaklega fyrir þá sem eru í meðferð hjá heilsumiðstöð Endurheimtar.
- Mat á stöðu og frekari úrvinnslu eftir þörfum.

