4. vikur
Þú getur byrjað strax!
Mjúkt flæði er kennt á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 12:30-13:20
Innifalið í grunnnámskeiði er aðgangur að glæsilegu innra neti, með daglegum stuðning, fyrirlestrum, fræðslumolum, uppskriftabók með vikumatseðli / innkaupalista.
Námskeiðið er viðurkennt meðferðarúrræði hjá VIRK starfsendurhæfingu (8 vikur) og er niðurgreitt af stéttarfélögum.
———-
Í þessum tímum kennum við góðar grunnæfingar til að byggja upp styrk og liðka líkamann. Tíminn er
rólegur, upphitun byggist frekar á að ná tökum á hreyfingum og því meira lagt upp úr árangursríkum
æfingum, teygjum og slökun.
Rólegt gott flæði allan tímann sem byggir upp og gerir einstaklinginn öruggan í sínum æfingum.
Þú stjórnar álaginu í tímunum, ef þú hefur meiri orku og styrk þá byggjum við ofan á grunnæfingarnar. Æft er í fámennum hóp þannig að þú færð það álag sem hentar þér.
Tímarnir verða alltaf byggðir upp eftir einstaklingunum sem mynda hópinn.
Hámark 10 í hverjum hóp
Kennari: Ragna Ingólfsdóttir yoga kennari. Hún hefur áratuga reynslu við þjálfun og er tvöfaldur ólympíufari í Badminton. Ragna hefur einstaklega góða nærveru og tekur vel á móti þér.
Grunnnámskeið
4. vikur – 29.800 kr. pr/mán.
Fræðsla innifalin.
Eftir að hafa lokið grunnnámskeiði þá býðst þér að halda áfram með mánaðaráskrift.